Þeir sem gerast félagsmenn í samvinnufélögum geta notið ávinnings af með beinum og óbeinum hætti.  Hægt er að sækja um svonefnt KEA kort ef þú ert félagi þar.  Kortið veitir rétt til margvíslegs afsláttar hjá fyrirtækjum, einkum norðanlands en í sumum tilvikum gilda afsláttarkjörin um land allt.  Hér má lesa um KEA kortið og sækja um.

Félagsmenn í Kaupfélagi Suðurnesja og ýmsum öðrum kaupfélögum fá sent afsláttarkort sem veitir fastan afslátt í öllum verslunum Samkaupa, þar með talið Nettó, Samkaup Strax, Kjörbúðin og Krambúðin.  Hér má lesa um það og sækja um aðild.