Samvinnuhreyfingin stendur traustum fótum í Bandaríkjunum og ekki síst í Wisconsin.  Við fylkisháskólann sem starfræktur er í höfuðborginni Madison er meðal annars sérstök rannsóknamiðstöð í samvinnufræðum.

Miðstöðin heldur upp á 60 ára afmæli sitt á þessu ári og hefur minnst þess með margvíslegum hætti.  Hún skilgreinir hlutverk sitt með eftirfarandi hætti: "The University of Wisconsin Center for Cooperatives seeks to increase understanding and encourage critical thinking about cooperatives by fostering scholarship and mutual learning among academics, the cooperative community, policy makers and the public."

Hér má kynna sér miðstöðina og starf hennar.