Í Bretlandi eru 7.000 samvinnufélög, með 17.000 félagsmenn sem árlega velta um 34 milljörðum punda.  Samvinnuhreyfingin í landinu tekur myndarlegan þátt í alþjóðaári samvinnufélaga og frá 23. júní - 6. júlí verður athyglinni beint að framlagi einstakra félagsmanna undir kjörorðinu "We can be heroes".  Félagar eru þá hvattir til að senda inn sögur og dæmi af fólki sem hefur verið  til fyrirmyndar í samvinnustarfi og/eða náð samfélagslegum árangri í gegnum það.  Lesa má meira um það hér.