Alþjóðadagur samvinnufélaga verður haldinn hátíðlegur þann 6. júlí 2019.  Þetta er í 96. skipti sem dagurinn er haldinn hátíðlegur innan samvinnuhreyfingarinnar og í 25. skipti sem Sameinuðu þjóðirnar standa að hátíðahöldum með samvinnuhreyfingunni.  SÞ lýstu árið 2012 alþjóðlegt ár samvinnufélaga og var vakin athygli á samvinnustarfi víða um heim allt það ár.

Alþjóðadagurinn er haldinn árlega fyrsta sunnudag í júlí.  Hér má sjá upplýsingar um daginn í ár en hann var haldinn hátíðlegur í 40 löndum um allan heim.