Samtök smærri bænda í Bandaríkjunum (National Farmers union) leggja mikla áherslu möguleika samvinnustarfs í landbúnaði. Í febrúar 2024 halda samtökin námsstefnu í Minneapolis, sérstaklega miðaða að námsfólki og öðrum yngri einstaklingum.

Tilgangurinn er að kynna möguleika samvinnufélaga fyrir yngra fólki, hugsunina að baki samvinnustarfi, starfsemina í dag og hvaða möguleika hún býður upp á.  Námsstefnan er staðarfundur en einnig er hægt að fylgjast með í streymi.  Sjá nánar hér.